Febrúar 2015
Við hættum skyndilega og án nokkurs fyrirvara að birta nýjar færslur á blogginu í maí 2014. Mánuðirnar sem eftir fylgdu voru annasamir hjá okkur báðum vegna flutninga og lítill tími gafst til að skrifa. Komið er nýtt ár og við báðar búnar að koma okkur fyrir á nýjum slóðum ásamt fjölskyldum okkar, önnur heima á Íslandi, hin í borgríkinu Singapúr.
Okkur finnst tímabært að reka formlega endahnútinn á verkefnið ,,Með kveðju frá Kína” þar sem við skrifum ekki lengur frá alþýðulýðveldinu. Á næstu vikum munum við samt sem áður reyna að birta nokkrar nýjar færslur sem við höfðum undirbúið og finnst mikilvægt að klára. Við vonum að lesendur hafi jafn mikið gagn og gaman af og við sjálfar.
Elsa og Sigga
Á undanförnum áratugum hafa Kínverjar stóraukið umsvif sín í efnahagsmálum heimsins og eiga án vafa eftir að hafa mikil áhrif á heimsmynd framtíðar. Íslendingar hafa orðið varir við þessa þróun, til dæmis með auknum áhuga Kínverja á norðurslóðum.
Fréttir frá Kína verða sífellt fyrirferðarmeiri. Íslenskir fjölmiðlar hafa fylgst með kínverskum hagvexti og fréttir af furðulegum atburðum og uppákomum í Kína skjóta reglulega upp kollinum. Minna ber á umfjöllun um kínverskt samfélag og menningu. Við, sem höfum búið hér í nokkur ár, höfum því ákveðið að deila reynslu okkar og upplifun af landi og þjóð með samlöndum okkar. Við vonumst til þess að auka þannig vitneskju um Kína, landið sem lengi var svo fjarri en lætur nú sífellt meira til sín taka á heimsvísu.
Með kveðju frá Kína,
Elsa Ævarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir
Um okkur
Elsa er með háskólagráðu í innanhússarkitektúr frá Þýskalandi og stundaði nám í hagnýtri fjölmiðlun við HÍ. Hún rak eigin teiknistofu í Reykjavík til ársins 2007 en þá flutti hún til Shanghai ásamt fjölskyldu sinni. Elsa hefur komið að útgáfu og ritstjórn bóka um íslenska hönnun og arkitektúr og skrifað tímarita- og blaðagreinar um hönnunartengd málefni.
Sigríður er grunnskólakennari að mennt og með meistarapróf í menntunarfræðum frá HÍ. Hún hefur starfað við kennslu og stjórnunarstörf ásamt því að stunda rannsóknir. Sigríður er annar eiganda ráðgjafa- og matsfyrirtækisins Ísmats ehf. Hún hefur búið í Shanghai frá árinu 2010 ásamt fjölskyldu sinni.
