Svara
Greinasafn fyrir flokkinn: Dálítið kínverskt
Konfúsíus og hin ráðandi öfl
„Að læra án þess að hugsa er tilgangslaust. Að hugsa án þess að læra er hættulegt“.
Þessi tilvitnum er skráð á stólpa í Konfúsíusarhofi í Shanghai. Önnur okkar kom í hofið vorið 2008 og skrifaði þetta hjá sér. Annars var heimsóknin eftirminnilegust fyrir friðsældina. Fyrir utan örfá ungmenni sem sögðust vera nemendur í konfúsískum fræðum var enginn á staðnum. Það er ekki oft sem slíkt gerist í margmenninu í Kína.
Nú, aðeins nokkrum árum seinna, er Konfúsíus heldur fyrirferðarmeiri í alþýðulýðveldinu. Lifnað hefur yfir Konfúsíusarhofum landsins með tilheyrandi helgiathöfunum og hundruð þúsunda ferðamanna flykkjast til fæðingarborgar heimspekingsins sem í auglýsingum hefur verið líkt við Mekka. Klassísk kínversk verk hafa náð vinsældum á ný og konfúsísk rit raunar selst svo vel að útgáfufyrirtækið sem gefur þau út á stafrænu formi hefur verið skráð á kínverskan hlutabréfamarkað. Þá mun Peking háskóli bjóða viðskiptamönnum upp á hraðnámskeið í almennri þekkingu á sígildum ritum. Þetta rímar allt vel við hraðann sem einkennir efnahagslegan uppgang Kína.
Erlendis tengja margir nafn Konfúsíusar við stofnanir sem fjármagnaðar eru af kínverska ríkinu og starfræktar innan háskóla víða um heim, meðal annars Háskóla Íslands. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni fræðslu um kínverska tungu, menningu og samfélag.
En það er ekki tilviljun að nafn Konfúsíusar er notað til að beina athygli umheimsins að Kína.

Hver var Konfúsíus?
Konfúsíus (Kongzi 孔子) var uppi fyrir meira en 2500 árum, fæddur árið 551 f.Kr. Þegar hann var þriggja ára dó faðir hans og móðirin fór á vergang í leit að vinnu og húsaskjóli. Drengurinn þótti dreyminn og gleymdi sér gjarnan í ímynduðum heimi og skáldskap. Hann langaði að verða embættismaður en hafði ekki réttu samböndin. Þess í stað hóf Konfúsíus ungur að kenna og voru nemendur hans af öllum stéttum. Þetta var á tímum ófriðar og spillingar og hann var sannfærður um að kenna þyrfti fólki að samrýma þrár sínar þörfum fjölskyldunnar og samfélagsins. Honum lánaðist fyrir rest að komast í starf hjá yfirvöldum en aðrir valdamenn voru hræddir við þær umbætur sem hann boðaði. Konfúsíus var hrakinn úr starfinu og niðurlægður lagði hann af stað í ferð um landið og benti á ýmislegt sem miður fór. Sagan segir að hann hafi hitt konu eina sem missti mann sinn og son í gin tígrísdýrs. Þá sagði Konfúsíus við lærisveina sína að harðneskjuleg yfirvöld væru hræðilegri en tígrisdýr.
Konfúsíus var frumkvöðull í kennslu og lærisveinar hans skiptu þúsundum. Um sjötíu þeirra voru honum mjög nánir og eftir dauða spekingsins skráðu þeir hugmyndir hans í rit sem á kínversku kallast Lunyu, á ensku The Analects. Íslenska þýðingin heitir Speki Konfúsíusar.
Þótt Konfúsíus færi víða og reyndi að hafa áhrif á valdamenn tókst honum ekki sérlega vel upp. En margir eftirmenn hans tileinkuðu sér hugmyndirnar og með tímanum varð til sá konfúsismi sem var opinber hugmyndafræði í Kína á keisaratímum, frá 221 f.Kr. og þar til síðasta keisaraveldið féll árið 1911.
Við endalok keisaraveldisins voru margir gagnrýnir á hvort stjórnarhættir í anda konfúsisma hefðu verið landinu til góðs. Sumir vildu meina að þeir hefðu komið í veg fyrir framfarir og stuðlað að því að Kína var nú vanþróað ríki í samanburði við Vesturlönd. Aðrir töldu að ekki væri hægt að afneita konfúsískri hugsun nema hafna um leið kínverskri menningu. Þeir vildu aðlaga stefnuna nýjum tímum og slíkar hugmyndir þróuðust áfram í Taiwan, Hong Kong og Singapúr. Konfúsisma var hinsvegar úthýst á meginlandi Kína þegar kommúnistar tóku þar völd árið 1949. Mao taldi stefnuna af hinu illa og í menningarbyltingunni voru hundruð Konfúsíusarhofa eyðilögð og skemmdarverk unnin á grafreit hugsuðarins og afkomenda hans.
Konfúsismi
Á vísindavef háskólans má finna eftirfarandi lýsingu á konfúsisma: ,,Í örstuttu og ofureinfölduðu máli snýst konfúsísk heimspeki um að tileinka sér siði og hefðir sem ríkt hafa í Kína frá og með Zhou-veldinu en laga þau að breyttum aðstæðum. Konfúsíus sagði sjálfur að viska fælist í því að færa fram hið nýja á grundvelli hins gamla. Í þessu felst mikil og sterk fjölskylduhefð og krafa um virðingu hinna yngri og óreyndu gagnvart hinum eldri og lífsreyndari. Hinum yngri er ætlað að taka sér eldra fólk til fyrirmyndar en um leið tjá reynslu þess í framkvæmd með persónulegum hætti í ljósi ríkjandi aðstæðna. Þannig er gífurleg áhersla lögð á lærdóm og námsfýsi.”
Konfúsíus boðaði samhug, skyldurækni og venjur sem minna á helgiathafnir. Þótt margt í iðkun konfúsisma minni á átrúnað er hann ekki prestaregla og almennt ekki talinn til trúarbragða.
Konfúsíus og hinn ráðandi flokkur
Augljóslega spretta kenningar Konfúsíusar ekki upp á yfirborðið í alþýðulýðveldinu nema með samþykki kommúnistaflokksins. Eftir dauða Mao árið 1976 urðu miklar breytingar á stefnu flokksins og með Deng Xiaoping í broddi fylkingar var kúrsinn tekinn á efnahagslega hagsæld. Valdabreytingar voru þó ekki liður í nýrri stefnu eins og glöggt kom í ljós á Torgi hins himneska friðar árið 1989 þegar uppreisn lýðræðisþenkjandi stúdenta var kæfð niður með herafli. Í kjölfar hörmulegs blóðbaðsins á torginu var aðkallandi að skapa nýja og betri ímynd fyrir flokkinn og endurvekja trú almennings á yfirvöldum. Leitað var í gamlar hefðir og það var á þessum tíma sem forystumenn í kommúnistaflokknum hófu að nefna Konfúsíus á nafn í ræðum sínum. Þættir um forna menningu hófu göngu sína í ríkissjónvarpinu og mun tilgangur þeirra hafa verið að efla sjálfsvirðingu og sjálfstraust þjóðarinnar og hvetja til þjóðernislegrar samkenndar. Árið 2002 hætti flokkurinn opinberlega að kalla sig byltingarflokk og byrjað var að tala um ,,hinn ráðandi flokk” (Party in Power). Helstu ráðamenn hófu að boða samhug og stöðugleika í samfélaginu og í febrúar 2005 vitnaði Hu Jintao, þá æðsti maður í flokknum, í Konfúsíus og sagði að harmónía væri eitthvað sem vert væri að hlúa að (harmony is something to be cherished).

Smám saman varð samhugur að kjörorði kommúnistaflokksins og orðinu harmóníu fór að bregða æ oftar fyrir á veggspjöldum, í sjónvarpsauglýsingum og í orðræðu embættismanna. Á 2.557 afmælisdegi Konfúsíusar, árið 2006, var gefin út það sem kallað var stöðluð mynd af Konfúsíusi, stytta sem sýnir vingjarnlegan öldung með mikið skegg og krosslagða handleggi. Með opinberum stuðningi voru kynntar til sögunnar ýmsar hefðir sem ekki höfðu tíðkast fram að þessu, til dæmis sú að pör gætu endurnýjað hjúskaparheitið fyrir framan líkneski af Konfúsíusi.
Það var svo í janúar árið 2011 að risavaxin 17 tonna stytta af Konfúsíusi var reist á Torgi hins himneska friðar. Þarna horfðust þeir nú í augu sitt hvoru megin á torginu, Mao og Konfúsíus. Í ljósi sögunnar, en Mao hafði barist á móti öllu sem Konfúsíus stóð fyrir, þótti þetta náttúrlega heldur kaldhæðnislegt. Enda stoppaði Konfúsíus stutt, í skugga nætur þann 20. apríl sama ár hvarf styttan jafn skyndilega af torginu og hún hafði birst. Gárungarnir töldu að Konfúsíus, sveitamaður frá Shandong héraði, hefði ekki verið með hukou í höfuðborginni. Ekki var mikið fjallað um hvarf styttunnar í kínverskum fjölmiðlum en greinilega var ekki samhugur um málið innan flokksins.

Konfúsíusarstofnanir
Þótt ásjóna Mao ríki enn yfir torginu stóra í höfuðborg Kína þá gefur hinn vinalegi öldungur, Konfúsíus, tvímælalaust mildari mynd af Kínaveldi út á við. Svip Mao brá hvergi fyrir á opnunarhátíð Ólympíuleikanna árið 2008 en mikið var um tilvitnanir í harmóníu og klassísk rit. Konfúsíusarstofnanirnar sem stofnað hefur verið til innan háskóla bera hróður heimsspekingsins víða um lönd. Flestir háskólar hafa tekið því opnum örmum að fá fjármagn og kennsluefni frá yfirvöldum í Kína til að efla kínverskukennslu og kynna kínverska menningu innan sinna raða. Í seinni tíð heyrast þó sífellt fleiri raddir sem kvarta undan því að stofnanirnar takmarki tjáningarfrelsið og fyrsti háskólinn til að loka Konfúsíusarstofnun af þeim sökum var McMaster háskóli í Kanada. Fleiri skólar hafa bæst í hópinn, nú síðast Stokkhólmsháskóli. (sjá frétt RÚV um málið hér).
Talskona kínverska utanríkisráðuneytisins, Hua Chunying, hefur svarað þessum ásökunum og sagt að Konfúsíusstofnanir séu ,,brú sem tengir Kína við aðra heimshluta.” Hún leggur áherslu á að starfið sé opið og lúti gagnsæi. Í merkilegu viðtali sem fréttamaður BBC tók við áhrifakonuna Xu Lin kemur aftur á móti í ljós að ekki eiga allar spurningar við þegar fjallað er um Konfúsíusarstofnanir. Xu er forstöðukona Hanban, opinbers embættis sem hefur það að markmiði að efla og kynna kínverska tungu erlendis og hefur jafnframt umsjón með starfi Konfúsíusarstofnana um allan heim. Viðtalið má sjá hér:
Friðarverðlaun Konfúsíusar
Nafn Konfúsíus varð fyrir valinu þegar kínversk stjórnvöld komu á fót alþjóðlegum friðarverðlaunum, Confusius Peace Prize, árið 2010. Þetta var sama ár og kínverski uppreisnarmaðurinn Liu Xiaobo vann til Friðarverðlauna Nóbels, vægast sagt í mikilli óþökk kínverskra yfirvalda. Liu var hnepptur í hald til að koma í veg fyrir að hann gæti flogið til Osló og tekið á móti verðlaununum og í framhaldinu var hann dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir skoðanir sínar. Skömmu áður en heiðra átti Liu Xiaobo í Noregi voru Friðarverðlaun Konfúsíusar afhent í fyrsta sinn í Kína. Heiðurinn hlaut Vladimir Putin Rússlandsforseti fyrir að koma á ,,öryggi og stöðugleika” í Rússlandi. Þess má geta að verðlaunahafi árins 2014 var Fidel Castro.
Áhugi almennings og Hin heilaga borg Austurlanda fjær
Fyrir nokkrum árum keypti önnur okkar eintak af enskri útgáfu bókarinnar Confusius from the Heart í bókabúð í Shanghai en hafði þá ekki grun um gríðarlegar vinsældir hennar meðal heimamanna. Höfundurinn heitir Yu Dan og er prófessor við fjölmiðladeild Beijing Normal háskóla. Bókin, sem selst hefur í tugmilljónum eintaka, og vinsælir sjónvarpsþættir sem hún gerði um sama efni, hafa gert Yu að dægurstjörnu í Kína. Túlkun Yu Dan á konfúsisma er þó ekki óumdeild og einn efasemdarmaðurinn mun eitt sinn hafa mætt á bókakynningu hjá Yu Dan í bol með áletruninni ,,Konfúsíus er mjög áhyggjurfullur”. Staðreyndin er hinsvegar sú að Yu er einn tekjuhæsti rithöfundur Kína og tíður gestur á ráðstefnum. Bókin hefur verið þýdd á íslensku undir nafninu Heilræði hjartans.
Í seinni tíð er oft talað um að í Kína nútímans hafi skapast einskonar menningarlegt tómarúm sem efnahagsleg uppsveifla og aukin velsæld hafa ekki náð að fylla. Það gæti skýrt mikinn áhuga hinnar nýju kínversku millistéttar á eldri hefðum og þjóðmenningu, þar með talin heimspeki Konfúsíusar. Foreldrar innrita börnin sín í Konfúsíusarskóla þar sem börn niður í þriggja ára aldur læra kennisetningar utanbókar með því að þylja þær upp í hundruði skipta. Ferðamenn innanlands flykkjast í þau Konfúsíusarhof sem eftir standa í landinu og fylla þar út bænaspjöld. Munu mörg þeirra snúa að óskum um gott gengi í prófum, ekki síst hið margumtalaða inngöngupróf í kínverska háskóla.

Alþjóðlega Konfúsíusarhátíðin sem haldin er árlega í borginni Qufu í Shandong héraði nýtur sívaxandi vinsælda. Qufu er fæðingarborg heimsspekingsins og var fyrsta hátíðin haldin árið 2007. Þá fylltu þúsundir manna helsta vettvang hátíðarinnar sem skreyttur var með blöðrum með nafni Konfúsíusar og hlýddu á vinsæla popptónlist frá Kóreu. Í borginni er nú verið að byggja risavaxið Konfúsíusarsafn og samkvæmt upplýsingamiðstöð ferðamála í Jining héraði er framkvæmdin metin á 500 milljón yuan (um 80 milljónir bandaríkjadollara). Mun safnið, sem er rúmir 56 þúsund fermetrar að stærð, opna á þessu ári. Í markaðssetningu á Qufu er borginni líkt við Mekka og Jerúsalem og kölluð Heilög borg Austurlanda fjær (The Oriental Holy City). Gestir borgarinnar eru nú taldir í milljónum og þar með þegar mun fleiri en þeir sem heimsækja Ísrael á ári hverju. Ekkert lát er á sköpunargleðinni í ferðamálaráði Qufu borgar og í haust mátti lesa um nýjustu áformin í frétt á Xinhua. Þar kemur fram að unnið sé að því að mennta leiðbeinendur sem síðan munu fara um nágrannahéruðin og kenna konfúsisma. Boðið verður upp á kennslustundir á þorpstorgum, byggð bókasöfn og settar upp leiksýningar. Í fréttinni kemur fram að tilgangurinn sé að gera þekkingu á konfúsisma vinsæla, bæta lífsgæði þorpsbúa og skapa harmóníu í samfélaginu.


Í framtíðinni geta ferðamenn sem eru áhugasamir um Konfúsíus einnig lagt leið sína til Beidaihe. Þar hefur flokksmaður í kommúnistaflokknum og fyrrum foringi í kínverska hernum, Wang Dianming, komið upp 50 milljón yuan (um 8 milljónir bandaríkjadollara) skemmtigarði þar sem risavaxið líkneski af Konfúsíusi með útrétta arma hefur vakið athygli. Styttan er ekki í samræmi við stöðluðu útgáfuna, heilir 19 metrar á hæð og minnir helst á heimsþekkt líkneski af Kristi í Ríó de Janeiro í Brasílíu. Í viðtali við fjölmiðla sem birtist m.a. í The Japan Times, segir Wang: „Kínverski draumurinn nærist á einstakri menningu Kína og konfúsisma.” Í umfjölluninni segir einnig að á stalli styttunnar séu kínversk tákn, fyrir kínverska drauminn á framhliðinni, en á bakhliðinni er vitnað í sósíalíska hugmyndafræði. Þá tryggir lítil stytta af Mao í einu horni garðsins að öll hugmyndafræði kínverska ríkisins eigi sinn fulltrúa á staðnum.
Kínverskri draumurinn og konfúsismi
Síðan Xi Jinping tók við æðsta embætti í landinu snemma árs 2013 hefur hugmyndinni um kínverska drauminn vaxið fiskur um hrygg. Framtíðarsýn forsetans felur í sér einhverskonar endurfæðingu Kína á grunni framúrskarandi fortíðar. ,,Fyrir nokkrum árþúsundum síðan fetaði kínverska þjóðin slóðir sem voru frábrugðnar menningu og þróun annarra þjóða“ var haft eftir forsetanum í People´s Daily, opinberu málgagni kínverska kommúnistaflokksins, í október 2014. ,,Við ættum að virða og minnast óslitinnar 5000 ára menningarsögu Kína“ sagði hann ennfremur. Skömmu áður talaði Xi á ráðstefnu sem haldin var á vegum Alþjóðlegu Konfúsíusarsamtakanna í tilefni af 2565. afmælisdegi Konfúsíusar og sagði þá: ,,Framúrskarandi hefðbundin kínversk menning, þar með talinn konfúsismi, hefur að geyma mikilvægar vísbendingar til að leysa þau vandamál sem herja á mannkynið nú um stundir.“
En ekki hafa allir í Kína sama skilning á konfúsisma og kommúnistaflokkurinn, þar með talinn Li Ling, prófessor við Peking háskóla. Í bókinni Stray Dog: My Reading of the Analects gagnrýnir hann það sem hann kallar verksmiðjuframleiddan Konfúsíus og skrifar meðal annars: ,,Hinn sanni Konfúsíus, sá sem lifði, var hvorki kóngur né vitringur. Hann hafði hvorki vald né stöðu – aðeins siðgæði og fróðleik – og þorði að gagnrýna valdaelítu síns tíma.“ Li skrifar einnig að Konfúsíus hafi lifað eins og flækingur, fylgt eftir skoðunum sínum og stöðugt reynt að sannfæra valdamenn um réttlætið. Þegar bók Li kom út í maí árið 2007 var hún strax fordæmd af öðrum fræðimönnum, til dæmis af Jiang Qing, sem er áberandi maður í pólitískri túlkun á konfúsisma. Jiang kallaði Li Ling háðskan heimsendaspámann og sagði að hugmyndir hans væru ekki svaraverðar. Nóbelsverðlaunahafinn Liu Xiaobo var einn þeirra sem komu Li til varnar og varaði við því að átrúnaður á konfúsisma myndi leiða til þess að aðrar stefnur yrðu bannaðar.

Harmónía
Í þessu andrúmslofti getur verið snúið fyrir kínverskan almenning að finna réttu svörin og harmónískt faðmlag flokksins við konfúsisma er ekki óumdeilt í Kína. Manna á milli, í nokkru háði, hefur til dæmis orðið til nýtt orð. Þegar kínverska ritskoðunarvélin eyðir kommentum út af internetinu jafnharðan og þau birtast er talað um að ummælin hafi verið ,,harmóniseruð.”
Hvort harmónían sem kínverski kommúnistaflokkurinn boðar geti bjargað heiminum á eftir að koma í ljós. Fagnaðarerindið breiðist að minnsta kosti hratt út. Þegar hafa hátt á fimmta hundruð Konfúsíusarstofnana verið opnaðar í yfir hundrað löndum og stefnt er að því að þær verði orðnar 1000 árið 2020.
Lokað vegna fyrirmenna
Ráðstefna um gagnkvæm samskipti og ráðstafanir til að byggja upp traust í Asíu gæti hún kallast á íslensku ráðstefnan sem er haldin hér í Shanghai í dag, 21. maí. Til þess að háttsettir herramenn frá fjörutíu löndum innan Asíu (kvenkyns fulltrúar setja ekki mikinn svip á ráðstefnuna) geti farið óheftir um borgina hefur athafnafrelsi þeirra 24 milljón manna sem hér búa verið skert. Skólastarf liggur niðri, stórir vinnustaðir eru lokaðir og varað er við miklum umferðartöfum vegna lokana á helstu samgönguæðum á vissum tímum dags. Heyrst hefur að öll vændishús borgarinnar séu lokuð í viku og í dag voru margar vinsælar búðir sem selja ólöglega mynddiska lokaðar. Íbúar sumra svæða mega sætta sig við að komast ekki til og frá heimili sínu þegar þessir mikilvægu menn fara um og þeim sem búa í húsum sem snúa í átt að áfangastöðum stórmennanna hefur verið bannað að opna glugga. Til að tryggja að allir fari eftir reglunum eru lögreglumenn á nánast hverju götuhorni. Brynvarðir sérsveitarbílar gefa til kynna mikilvægustu staðina og einkennisklædd lögregla stendur vörð um neðanjarðarlestarkerfið. Þúsundir sjálfboðaliða í appelsínugulum vestum standa auk þess vaktina víðsvegar um borgina.

Íburðarmiklar blómaskreytingar, auglýsingaborðar á ljósastaurum við helstu umferðargötur, stóraukin löggæsla og sýnilegar sérsveitir hafa á undanförnum vikum gefið til kynna að mikið stæði til í Shanghai. Fram til þessa hefur þessi ráðstefna, sem nú er haldin í fjórða sinn, látið lítið yfir sér. Samkvæmt frétt í South China Morning Post eru margir ráðstefnugestir hálf hissa á hversu mikið hefur verið gert úr fundinum hér í Kína. Á móti kemur að Kínverjar eru iðulega stórtækir í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur og er þá skemmst að minnast Expo heimssýningarinnar sem haldin var í Shanghai árið 2010.

Asískir ráðamenn hafa streymt til Kína á síðustu dögum og sé mark takandi á sjöfréttum rásar eitt í kínverska sjónvarpinu tekur Xi Jinping Kínaforseti á móti hverjum og einum með viðhöfn. Opinberar móttökuathafnir fara venjulega fram í höfuðborginni Beijing en hér í Shanghai er vettvangurinn innan Xijiao garðsins. Hefð er fyrir því að æðstu menn í kínverska kommúnistaflokknum gisti þar (þar með talinn Mao formaður) þegar þeir dvelja í borginni. Innan garðsins má finna margskonar móttökurými, veitingastaði, veislu- og fundarsali, hótel og gistibústaði auk forsetabústaðarins.
Garðurinn er í fimm mínútna göngufjarlægð frá heimili annarrar okkar. Það fer ekkert á milli mála í hverfinu þegar einhver mikilvægur heimsækir Xijiao garðinn og engar ferðir utanaðkomandi eru leyfðar um þetta umfangsmikla svæði. Útlendingar hafa þó komist upp með að fara þar í gegn ef vel stendur á, ekki síst ef þeir eru á skokki, og það er óhætt að segja að hvorki sé til friðsælli né fegurri garður í borginni.
Síðustu tveir dagar hafa verið annasamir í Xijiao garðinum, rauðum dreglum hefur verið rúllað út og skotið úr fallbyssum fyrir bæði forseta Kazakstan og Rússlands, hugsanlega fleiri. Mesta athygli fær Vladimir Pútin, sjónvarpsfréttirnar sýndu myndir frá komu hans í gær og hann er á forsíðu allra helstu netmiðla og dagblaða í dag. En þegar Xi Jingping, Pútin, Ban Ki-moon aðalritari Sameinuðu þjóðanna, og 38 aðrir höfðingjar bruna um göturnar í Shanghai raskast líf almennra borgara. Þannig hafa til dæmis margir í nágrenni Xijiao garðsins verið lokaðir inni í hverfum sínum þegar bílalestirnar fara hjá. Vinkona okkar sem býr í næsta nágrenni garðsins komst ekki á réttum tíma til að sækja dóttur sína í skólann í gær þar sem hliðið að hennar eigin hverfi var lokað á meðan bílalest Pútíns keyrði framhjá. Engum var leyft að fara út á götuna, hvorki á bíl, fótgangandi né á hjóli.


Fyrirmennin voru greinilega einnig á ferðinni í miðborginni í gær því þangað streymdu brynvarðir bílar og hertrukkar. Önnur okkar átti, ásamt syni sínum, erindi í verslunina Zöru við Torg fólksins, Peoples Square, í hjarta Shanghai síðdegis í gær. Torgið sjálft var afgirt og alveg lokað og mikil öryggisgæsla allt í kring. Búið var að loka nálægum veitingastöðum en flestar verslanir virtust opnar. Zara var opin en óvenju fáir viðskiptavinir voru inni í búðinni. Nóg var af sjálfboðaliðum og óeinkennisklæddum lögreglumönnum og það var hálf ónotalegt að vera einu viðskiptavinirnir á efri hæðinni þar sem einn slíkur fylgdist vel með hverri hreyfingu. Þegar haldið var fótgangandi heim á leið, tók það helmingi lengri tíma en venjulega því að búið var að loka göngubrú sem gerir gangandi umferð kleift að fara yfir hraðbrautina, Yanan Road, sem sker borgina endilanga frá austri til vesturs. Það er ekki auðvelt að komast yfir þessa götu, sem er á tveimur hæðum, og vegfarendur þurftu að taka á sig mikinn krók. Það var greinilegt að Shanghaibúum var ekki skemmt, sumir reyndu að malda í móinn en lögreglan svaraði fullum hálsi og bandaði almúganum frá.

Nokkuð er síðan tilkynnt var að skólum í Shanghai yrði lokað 21. maí vegna ráðstefnunnar. Lengi vel leit þó út fyrir að alþjóðlegu skólarnir myndu komast upp með að bindast böndum um að halda skólastarfi og ferðum skólabílanna til og frá skóla gangandi. Á síðustu stundu neyddust stjórnendur skólanna þó til að láta í minni pokann fyrir yfirvöldum. Öll skólabörn í Shanghai eru því heima í dag nema þeir nemendur sem eru að taka alþjóðleg stúdenstspróf þessa dagana. Þeim þurfti að ,,smygla” inn í skólana svo hægt væri að halda alþjóðlegri áætlun.

Fæstir sem hér búa skilja almennilega um hvað þessi fyrirferðarmikla ráðstefna snýst og enn síður hvers vegna borgin hefur verið vopnavædd í nafni öryggis. Í gær heyrði önnur okkar á tal tveggja kvenna í matvöruverslun sem fjórir lögreglumenn vöktuðu. Önnur kvennanna, sem greinilega var frá Belgíu, sagði að það væri nú ekki gott ef slíkar ráðstafanir yrðu gerðar í hvert sinn sem þjóðhöfðingi kæmi til Brussel. Kínverskur vinur okkar sagði að vinur hans sem býr í fjármálahverfinu í Pudong væri á síðustu dögum búinn að þurfa að sanna tilvist sína og búsetu svo oft fyrir lögreglumönnum í hverfinu að honum væri farið að líða eins og hann væri í stofufangelsi. Þegar farið er í neðarjarðarlestina er eins og allir séu þar í lögguleik, allar töskur eru skannaðar og umferðarlögreglan í sparibúningum gengur um og spyr fólk um skilríki. Áætlanir yfirvalda virðast hafa gengið eftir því yfirbragð borgarinnar er mjög rólegt í dag og flestir virðast hafa ákveðið að halda sig heima við. Og ekki er ósennilegt að boðið verði upp á skemmtidagsskrá í sjónvarpinu í kvöld, að minnsta kosti var heilmikil dans- og söngvasýning á dagskrá í gær með þá félaga Xi Jingping og Pútín á fremsta bekk áhorfenda. Meðal annars komu fram söngvarar í þjóðbúningi frá Tíbet sem sungu hugljúfa söngva með hina frægu Potala höll í Lhasa í bakgrunni.

Erlendir fjölmiðlar reyna, að því er virðist, í nokkurri örvæntingu að skilja um hvað Fourth Summit of Conference on Interaction and Confidence Building Measures in Asia, CICA ráðstefnan í Shanghai snýst, til dæmis virðist óljóst hvers vegna hér eru nú samankomnar fjörutíu Asíuþjóðir en ekki allar hinar. Flestir virðast vera að komast að þeirri niðurstöðu að hér hafi verið sköpuð heppileg umgjörð utan um sögulega samstarfssamninga milli Rússlands og Kína, en saga þjóðanna hefur oft áður fléttast saman í Shanghai. Xi Jinping og Pútín, sem báðir hafa verið fyrirferðarmiklir í alþjóðlegum fréttum undanfarið vegna deilna við nágrannaþjóðir, Rússar í Úkraníu og Kínverjar í landshelgisdeilu við Japani, Filippseyjar og Víetnam, standa nú í kastljósi kínverskra fjölmiðla eins og hetjur á asísku herrakvöldi.

Fyrir okkur sem hér búum er það tilhlökkunarefni að þessum pólitískum hátíðahöldum lýkur í kvöld og valdamenn með tilheyrandi öryggisgæslu halda aftur til síns heima í Beijing, Astana, Ashgabat, Teheran, Moskvu eða öðrum borgum. Þá fyrst mun okkur finnast Shanghai örugg á ný.

Flatskjár handa framliðnum
Í dag heiðra kínverskar fjölskyldur minningu forfeðra sinna á qingming hátíðinni. Kínversku orðin standa fyrir birtu og tærleika en í ensku er hefð fyrir því að kalla daginn Tomb Sweeping Day. Það á vel við því þennan dag heimsækja Kínverjar grafstaði forfeðranna, hreinsa þar til og færa fórnir. Fórnirnar endurspegla tíðarandann hverju sinni og hafa peningaseðlar, iPad, iPhone og flatskjáir verið vinsælar gjafir á síðustu árum, en reyndar er um að ræða eftirlíkingar úr pappír. Og ekki er aðeins líkt eftir nútímatækni því nú hafa komið fram á sjónarsviðið þjónustufyrirtæki sem bjóða upp á staðgengla til að sjá um verkið gegn gjaldi.

Veglegar fórnarathafnir forfeðrunum til heiðurs eiga sér langa hefð í Kína og segir sagan að gjafir til hinna látnu hafi verið orðnar svo íburðarmiklar og framferðið svo tímafrekt að keisaranum þótti nóg um. Fyrir 2500 árum síðan skipaði hann því svo fyrir að athafnirnar skyldu héðan í frá takmarkast við einn dag á ári. Æ síðan hefur qingming hátíðin verið haldin í heiðri. Miðað við það sem við höfum lesið og heyrt í spjalli við heimamenn fer fjölskyldan venjulega öll saman að grafreitnum. Þegar búið er að snyrta leiðið og leggja á það blóm, gjarnan tryggðarblóm (krýsantema), er komið að því að reiða fram uppáhaldsrétti hins látna. Víni er hellt í bolla og skammtinum í bolla grafarbúans er hellt yfir jarðveginn. Síðan borða gestirnir matinn við leiðið rétt eins og um lautarferð sé að ræða.

Þegar búið er að færa þeim framliðna mat og drykk er komið að því að tryggja góða fjárhagslega afkomu. Margir Kínverjar trúa að lífið eftir dauðann sé svipað lífinu í veruleikanum hverju sinni. Peningafórnir sem brenndar eru við grafreitina endurspegla þessa trú. Þær varpa reyndar líka ágætu ljósi á þann gríðarlega mikla áhuga á peningum sem öðru fremur einkennir Kína nútímans. Pappírsseðlarnir eru ýmist eftirlíkingar af kínversku yuan eða amerískum dollar og munu yfir 1000 tonn af pappír vera brennd í Kína á þessum tímamótum ár hvert. Fram hefur komið að andvirðið megi reikna í þúsundum milljóna þótt peningarnir séu ekki ekta.
En það eru ekki bara eftirlíkingar af peningaseðlum sem fuðra upp yfir kínverskum grafreitum. Eftirlifendur eru einnig mjög kappsamir í að deila nútímatækni með framliðnum ættingjum og pappírseftirlíkingar af tölvum, snjallsímum og spjaldtölvum seljast eins og heitar lummur. Langvinsælastar eru pappírsútgáfur af Apple vörum en flatskjáir og ýmis önnur rafmagnstæki seljast líka vel. Góðærið takmarkast ekki við heimilistæki því pappírsútgáfur af bílum, merkjatöskum, snyrtivörum af ýmsu tagi og jafnvel heilu húsunum mælast vel fyrir. Þá hafa heyrst sögur af hjúskaparvottorðum sem brenna upp í himinhvolfinu og staðfesta samband framliðinna ættingja og landsfrægra súperstjarna.

Grafreitirnir eru í úthverfum borga og bæja og í stórborgum eins og Shanghai skapast mikið umferðaröngþveiti á helstu leiðum. Í fyrra heimsóttu til dæmis 2,42 milljónir manna tvo stærstu grafreitina í borginni þessa hátíðarhelgi. Í slíku óreiðuástandi má gera ráð fyrir að fjölskylduferðin geti tekið á sig misánægjulegar myndir. Margir stórborgarbúar komast heldur ekki frá vinnu og aðrir eiga um langan veg að fara til heimahéraðanna og hafa kannski hvorki fjárráð né tíma til að vitja látinna ættingja. Það er því ekki að ástæðulausu að nú hafa menn séð viðskiptatækifæri í þessari gömlu hefð og bjóða upp á þjónustu þar sem hægt er láta aðra vinna verkin.
Á Taobao, stærstu netverslunarmiðstöð Kína, má finna ýmsa þjónustuaðila sem spara fjölskyldunni ferðalög og fyrirhöfn á qingming hátíðinni. Í nýlegri grein New York Times kemur fram að sé gerð leit á borð við ,,hreinsum fyrir þig leiðið” á Taobao poppi upp tugir fyrirtækja sem bjóða upp á slíka þjónustu í meira en tuttugu borgum í Kína.
Samkvæmt greininni í NYT er boðið upp á staðlaða pakka sem innhalda mat, blóm, hreinsun og fegrun grafreitsins, auk þess sem brenndar eru peningagjafir og reykelsi. Kyrrðarstundin mun taka um hálftíma og kostar á bilinu 100-800 yuan, eða um 1.800-15.000 íslenskar krónur. Viðskiptavinurinn fær sendar ljósmyndir af athöfninni áður en greitt er til að tryggja að ekki séu svik í tafli. Aðrir þjónustuaðilar ganga enn lengra og lofa beinni útsendingu á netinu frá grafstaðnum. Enn aðrir bjóða upp á bænastund gegn aukagreiðslu upp á 1.000-2.000 íslenskar krónur en þá beygir viðkomandi sig fram í bæn og snertir leiðið með enninu. Í annarri auglýsingu þykir rétt að taka fram að sá sem tekur að sé verkið sé ætíð látinn þvo sér vel daginn áður en verkið er unnið. Þá auglýsir þjónustufyrirtæki í höfuðborginni Beijing þjónustu gegn aukagjaldi sem felst í því að senda starfsmenn sem gráta yfir gröfinni á svæðið og telur hana henta vel fyrir Kínverja sem búa erlendis og eiga látna ættingja í Kína. Í grein NYT er talað við frú Zhang sem rekur slíka þjónustu í borginni Tianjin og segir hún að viðskiptin gangi mjög vel. Hún segir að hreinsun grafreita snúist fyrst og fremst um hugsanir og séu látnir ættingjar í huga þínum muni þeir skilja hvers vegna þú kemst ekki á svæðið í eigin persónu. Með því að kaupa þjónustu eins og hennar sértu að segja að þér standi ekki á sama.
Það er hefðbundin trú meðal Kínverja að andar forfeðranna vaki yfir eftirlifandi ættingjum og því er vel skiljanlegt að þeir vilji gera vel við þá látnu. Kannski má segja að hér ríki því ekki bara góðæri í raunheimum heldur líka meðal framliðinna Kínverja.

Qingming hátíðin er haldin ár hvert 15 dögum eftir vorjafndægur, sem að þessu sinni er 5. apríl.
Skrautlegur sjónvarpsáróður
Kínversku nýárshátíðinni lýkur í dag. Hátíðin, sem Kínverjar kenna við vorið, stendur yfir í fimmtán daga ár hvert. Fimmtándi dagurinn er haldinn hátíðlegur, ekki ósvipað og þegar jólin eru kvödd á þrettándanum. Dagurinn er kenndur við ljósker enda er þá til siðs að kveikja á pappírsluktum og ganga með þær um götur. Ljóskerin eru send upp í himingeiminn og gömul trú segir að þau vísi villuráfandi öndum leiðina heim.
Við ætlum aftur á móti að nota tilefnið til að senda út á netið nokkur eftirminnileg myndbrot úr kínversku sjónvarpi.
Fyrst er að nefna atriði sem hlotið hefur mikla athygli og er úr hátíðarskemmtiþætti kínverska sjónvarpins 30. janúar. Þátturinn er sendur út um allt Kína og er þar með sá sjónvarpsþáttur heimsins sem mest áhorf hefur. Yfir 700 milljónir manna fylgdust með þessari fjögurra klukkustunda löngu dagskrá á meðan beðið var eftir að ár hestsins gengi í garð á miðnætti. Og í jafnlangan tíma sneri ung kínversk dansmær sér á sjónvarpssviðinu sem tákn um líðandi stund og árstíðaskiptin. Stúlkan heitir Wei Caiqi og er frænka hinnar víðfrægu dansmeyjar Fang Liping sem er hálfgerð goðsögn hér í Kína og þekkt fyrir geysifagra og óvenjulega dansa. Snúningsdans hinnar fimmtán ára gömlu frænku hennar vakti mikla athygli og ekki voru allir jafn hrifnir. Var jafnvel talað um grimmd í kínverskum netheimum. Sjálf líkti Wei gjörningnum við hugleiðslu í athugasemd á eigin samskiptasíðu.
Sjónvarpsgalað er mikil áróðurs- og skrautsýning og skemmtiatriðin af ýmsum toga; dans, grínatriði, leikur og söngur. Þátturinn hefur verið sendur út á þessum tímamótum frá árinu 1983 en í ár var í fyrsta sinn í sögunni aðili utan ríkissjónvarpsins ráðinn til að stýra þættinum. Fyrir valinu varð þekktur gamanmyndaleikstjóri að nafni Feng Xiaogang. Reynt var að höfða meira til ungu kynslóðarinnar og aðkoma kóresku poppstjörnunnar Lee Min-ho var augljóslega liður í því. Flutningur frönsku leikkonunnar Sophie Marceau og kínverska listamannsins Liu Huan á franska slagaranum La vie en rose ljáði þættinum einnig alþjóðlegra yfirbragð. Það kom því nokkuð á óvart þegar dansflokkur frá kínverska þjóðarballettinum fyllti sviðið og dansaði byltingarkenndan kommúnistaballett í búningum rauðu varðliðanna. Í viðtali í kínverska sjónvarpinu sagði sýningarstjóri ballettflokksins að hún væri mjög ánægð að dansararnir hefðu fengið þetta tækifæri til að koma fram og að ákveðið hefði verið að helga atriðið fortíðinni og hylla um leið klassíkina.
Skömmu síðar var komið að baráttusöngvum með þjóðlegu hernaðarívafi.
Allt verður að pólitískum áróðri hér í Kína og yfirvöld í Peking hafa nú gengið svo langt að gera áramótaþáttinn að svokölluðu þjóðarverkefni en opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking árið 2008 var einmitt skilgreind á sama hátt. Þetta þykir sýna hversu mikilvægur þátturinn er í augum stjórnvalda.
Á vefsíðu NTD sjónvarpsstöðvarinnar í New York sver Feng, leikstjórinn vinsæli sem var valinn til að stýra þættinum í ár, þess eið að hann muni aldrei aftur taka að sér slíkt verkefni. Hann segir að eftir að hann tók við stjórn þáttarins hafi samstarfsmenn hans verið farnir að halda að hann væri ekki heill á geði. Á sama stað segir að Feng hafi viljað ögra yfirvöldum með því að bjóða rokkaranum Cui Jian, sem sumir kalla föður kínverska rokksins, að koma fram í þættinum. Cui Jian sem er á bannlista kínverska kommúnistaflokksins þáði boðið en fór fram á að syngja lagið ,,Nothing to my name” sem fjallar um vanda ungu kynslóðarinnar í Kína eftir dauða Mao formanns og stúdentana sem létu lífið í óeirðunum á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Sumir fjölmiðlar segja að fallist hafi verið á Cui Jian flytti lagið ef hann myndi breyta textanum. Rokkarinn hafði engan áhuga á slíku samkomulagi en kannski má segja að tilganginum hafi verið náð þar sem málið beindi sjónum að ritskoðun stjórnvalda á þættinum.
NTD sjónvarpstöðin var stofnuð af amerískum Kínverjum og veitir oft annað sjónarhorn á gang mála í Kína en ríkisfjölmiðlarnir hér í Alþýðulýðveldinu gera. Þar er haft eftir Yang Hengjun, sem er ritstjóri kínverskrar útgáfu ástralska dagblaðsins Sydney Times, að þátturinn sem eigi að vera fólki til skemmtunar, sé fullkomlega pólitískur og smitaður af þjóðernislegum áróðri og heilaþvotti. Í þessari sömu frétt NTD um áramótaþáttinn er skáldið Ye Kuangzheng inntur eftir áliti og kallar hann þáttinn árlega trúarathöfn stjórnmálanna og segir hann áróðurstæki til að dreifa pólitískum goðsögum um kommúnistaflokkinn. Hann segir að þegar hann heyrði að Feng Xiaogang hefði verið fenginn til að stýra þættinum í ár hefði hann haft að orði að jafnvel þótt sjálfur Chaplin væri fenginn til að leikstýra hefði honum ekki tekist að breyta neinu.
Dæmi nú hver fyrir sig því þótt Youtube sé bannað í Kína er þar að finna fjölmörg myndbönd með atriðum úr nýársþættinum. Fyrir þá þolinmóðustu er meira að segja hægt að horfa á rúmlega fjögurra klukkustunda útgáfu af þættinum öllum hér.
Gleðilegt ár hestsins!
Dagurinn í dag, 30. janúar, er sá síðasti á kínverska tungldagatalinu og á miðnætti gengur í garð nýtt ár. Ár snáksins kveður og við tekur ár hestsins. Hér í Kína er hesturinn tákn um persónulegar framfarir og samkvæmt stjörnuspeki heimamanna eru þeir sem fæddir eru í merki hestsins taldir gáfaðir, heilbrigðir og tilfinningasamir. Fólk í hestamerkinu býr yfir skarpskyggni og glaðværð, en einnig töluverðri þrjósku. Þetta þykir sumum benda til þess að á árinu 2014 muni mörg góðra manna ráð ekki ná eyrum þeirra sem þyrftu að hlusta. Happatölur ársins munu vera 2, 3 og 7 en óhappatölurnar eru 1, 5 og 6. Loks má bæta því við að fólk fætt í merki hestsins laðast gjarnan að fólki sem er fætt á ári tígrisdýrsins og ári hundsins. Það dregst hinsvegar síður að fólki sem er fætt í merki uxans og kanínunnar.

Kínversku áramótin skipa svipaðan sess í Kína og jólin á Vesturlöndum og stressið í aðdraganda þessara mestu hátíðahalda ársins hjá Kínverjum er síst minna en við eigum að venjast við jólaundirbúninginn. Hátíðin í kringum nýja árið er þekkt sem vorhátíðin og á sér djúpar rætur í sögu lands og þjóðar. Þótt hugmyndafræðin sé gjörólík þeirri sem tengist jólunum þá má kannski segja að í grunninn snúist hátíðin um það sama; að verja tíma með fjölskyldunni, gefa gjafir og síðast en ekki síst, um mat.

Nokkrum vikum áður en hátíðin gengur í garð fer að bera á allskonar kræsingum í matvöruverslunum og á mörkuðum. Þurrkað og reykt kjöt, fiskmeti og sjávarfang ýmisskonar, te, hnetur og ávextir. Sumt er dálítið furðulegt og stundum minnir þjóðlegur hátíðamatur í Kína á íslenskan þorramat þar sem hann er ósjaldan þurrkaður, sýrður eða reyktur.


Skólafrí hefjast nokkru áður en hátíðin gengur í garð svo börn með foreldrum sínum verða algengari sjón á götum borgarinnar en venjulega. Borgarbúar sem hafa hukou í öðrum héruðum halda velflestir heim á leið til að hitta sín eigin börn sem oft ganga þar í skóla. Farþegatölur í lestum, flugvélum og rútum fara fram úr öllum mælikvörðum og á einum degi fara fleiri ferðalangar um flugvellina og lestarstöðvarnar hér í Shanghai en sem nemur allri íslensku þjóðinni. Sem dæmi fóru 166 þúsund farþegar um eina af samgöngumiðstöðvum borgarinnar á einum degi þann 27. janúar. Fyrir þá sem vilja fræðast meira um þessa gríðarlegu tilflutninga á fólki í kringum kínverska nýárið viljum við benda á mjög áhugaverða heimildamynd sem heitir Last Train Home (myndin er hér á Youtube).

Trommusláttur, drekadans og flugeldar eru mikilvægur liður í hátíðahöldunum. Mikið ber á ýmisskonar skreytingum þar sem allskyns happatákn eru hengd utan á hús og í glugga til að laða að góða orku fyrir nýja árið. Algengt er að sjá mandarínutré sem er stillt upp sitthvoru megin við inngang húsa en þau standa fyrir lukku í fjármálum þar sem appelsínugulur litur ávaxanna er eins og gull. Allt rautt boðar gæfu, og peningagjöfum er komið fyrir í rauðu umslagi, svokölluðu hongbao. Þótt hongbao sé líka notað um afmælis- og brúðargjafir í Kína þá er það nýársgjöfin sem mestu skiptir. Upphaflega var hugmyndin sú að fullorðnir gæfu börnum hongbao en slíkar peningagjafir eru nú einnig algengar frá vinnuveitendum til starfsfólks og víðar. Þeir sem ferðast heim um hátíðarnar finna fyrir pressu að koma með nógu ríflegt hongbao og dýrar gjafir handa ættingjunum.


Kínverjar fundu upp púðrið og skoteldar með tilheyrandi hávaða og ljósadýrð hafa um aldir, ef ekki árþúsund, verið hluti af nýárshátíðahöldunum. Óhætt er að segja skotgleði Kínverja sé engu minni en Íslendinga og stundum finnst manni að allt hér í Kína byrji og endi með skoteldum. Það þarf ekki áramót til því hvort sem um er að ræða brúðkaup, opnanir verslana, stofnana og veitingastaða, flutninga í nýtt húsnæði eða afmæli, allt er þetta tilefni til að skjóta upp flugeldum. Skiptir þá ekki máli hvort bjart er af degi eða myrkur, í Kína má heyra í flugeldum allan ársins hring og á öllum tímum sólarhrings. Ekkert toppar þó kínverska gamlárskvöldið og í kvöld má búast við miklum hávaða eins og Íslendingar geta kannski gert sér í hugarlund nema að hér þarf að margfalda allt með nokkrum milljónum. Í fyrra voru það víst 30 þúsund borgarstarfsmenn sem fóru út á götunar í Shanghai á nýársnótt til að þrífa upp sóðaskapinn eftir flugeldana sem mældist í tonnum. Hér gæti þó orðið breyting á, því samkvæmt nýjustu fréttum hafa borgaryfirvöld í Shanghai og víðar hvatt íbúa til að stilla sprengingunum um áramótin í hóf. Ástæðan er mengunin sem hlýst af flugeldunum og stillt veðrið í ár hjálpar ekki til. Í fyrra voru mengunartölur í Shanghai á miðnætti himinháar, eða yfir 500 á PM2,5 mælikvarðanum, sem er áhyggjuefni eins og öll sú gríðarlega mengun sem landið glímir við.

Skömmu fyrir kínversk áramót verða rauðar nærbuxur áberandi í verslunum (og á þvottasnúrum) í borgum og bæjum í Kína. Úrvalið af rauðum undirfatnaði er fyrir bæði kynin og ósjaldan með gylltum bryddingum. Hér er það almenn (hjá)trú að rauður fatnaður geti afstýrt hugsanlegri ógæfu sem sækir fólk heim á tólf ára fresti. Kínversku dýramerkin eru tólf og við 12, 24, 36 o.s.frv ára aldur verða því þáttaskil í lífinu. Þetta kallast benming nian á kínversku og þá er hætta á slæmu ári. Til að hindra að slæm öfl nái til manna er talið hjálplegt að klæðast rauðu. Þá eru rauðar nærbuxur náttúrlega einföld lausn og Kínverjar hafa tröllatrú á rauða litnum sem táknar tryggð, frama og hamingju.


Þótt kalt sé í veðri í stærstum hluta landsins á þessum árstíma markar nýja árið líka upphaf vorsins í huga kínversku þjóðarinnar. Skreytingar sem eru settar upp í tilefni af hátíðahöldunum bera það dálítið með sér með tilheyrandi blóma- og litadýrð. Í gamla bænum hér í Shanghai eru skreytingarnar í ár íburðarmiklar að venju. Flestar vísa þær með einhverjum hætti í kínverskar sögur og hefðir en af einhverjum ástæðum slæddust biblíusögurnar með þetta árið og sjá mátti Adam og Evu í Paradís.


Með þessu myndum sendum við lesendum bloggsins okkar bestu kveðjur á nýju ári hestsins. Ýmsar kveðjur eiga við af þessu tilefni en hér eru þrjár þær algengustu:
1. 新年快乐 Xīnnián kuàilè! (gleðilegt ár)

2. 过年好 Guònián hǎo! (gleðilegt ár)

3. 恭喜发财 Gōngxǐ fācaí! (bestu óskir um hagsæld/velmegun/ríkidæmi)

Dálítið kínversk jól
Jólin teljast ekki til almennra frídaga hér í Kína enda er talið að innan við tvö prósent kínversku þjóðarinnar aðhyllist kristna trú. Flestir Kínverjar tengja jólin þó ekkert endilega við kristindóminn og margir eru farnir að gera sér dagamun á jólum þótt þau beri upp á hefðbundinn vinnudag. Við höfum líka komist að því að margt ungt fólk skreytir heima hjá sér og setur jafnvel upp jólatré. Einnig verður sífellt algengara að gefnar séu jólagjafir enda eru jólin í alþýðulýðveldinu fyrst og fremst keyrð áfram af verslunarmiðstöðvum sem leggja mikið í jólaskreytingarnar.

Alþjóðleg veitingahús og hótel taka einnig þátt í gleðinni og víða er boðið upp á sérstakan matseðil í tilefni af jólunum. Í stórmörkuðum er hægt að kaupa jólaskraut og afgreiðslufólkið er stundum með jólasveinahúfur.


Kínverska nýárið er stærsta hátíð Kínverja og er hún yfirleitt haldin í lok janúar eða byrjun febrúar í samræmi við tungldagatalið. Jólaljósin fá því víða að loga fram yfir kínversku hátíðahöldin, stundum með örlitlum áherslubreytingum. Verslunarmiðstöðvar sem hvað lengst hafa starfað í Shanghai eru augljóslega farnar að laga sig að þessu umhverfi og jólaskreytingarnar vísa þá jafnvel bæði til nýs árs 2014 og kínverska nýja ársins sem að þessu sinni er ár hestsins. Slagorðið Hold Your Horses er ef til vill skemmtileg tilvísun í að enn sé nokkur bið eftir kínversku nýárshátíðahöldunum sem verða í lok janúar að þessu sinni.

Enska orðið christmas þykir ekki alltaf heppilegt þegar talað er um jólahátíðina vegna augljósra tengsla þess við Jesú Krist. Svæði sem heitir Xintiandi og samanstendur af verslunum og veitingahúsum í fallega uppgerðum byggingum er þekkt fyrir líflegar jólaskreytingar hér í Shanghai. Í ár var það breski lýsingarhönnuðinn Paul Cockegde sem skapaði hlýlega hátíðarstemninguna undir slagorðinu Merry Kissmas.

Vörumerki ýmisskonar, hvort sem um er að ræða skart, ferðatöskur eða bjór, eru mjög oft hluti af jólaskreytingunum.



Jólaskreytingarnar eru afar vinsælar fyrir myndartökur meðal heimamanna og jafnt börn sem fullorðnir keppast við að stilla sér upp við dýrðina.


Gamlir siðir og venjur eru stór hluti af jólahátíðahöldunum á Íslandi og víðar. Slíkar jólahefðir eru að sjálfsögðu ekki til hér í Kína og þess vegna er mesta furða hvað hátíðin fær mikla athygli. Vissulega má tengja áhugann við aukna neyslu í kínversku samfélagi en í spjalli við innfædda hér í Shanghai höfum við þó ekki síður fundið að stórborgarbúarnir eru í leit að tækifærum til að gleðjast með vinum og fjölskyldu. Og kannski má segja að hinn eiginlegi andi jólanna sé einmitt þá til staðar þegar fólk kemur saman yfir góðum mat, skiptist á gjöfum og nýtur samverunnar.

Við sendum öllum lesendum bloggsins bestu óskir um gleðileg jól. Sheng dan kuai le!





