Það má segja margt um Kína, en hér er aldrei leiðinlegt.
Þessi orð eru höfð eftir Tess Johnston, sem er þekkt fræðikona og fyrirlesari í Shanghai. Þau lifa í minninu því fátt lýsir lífinu í Kína betur en þessi einfalda setning. Ef dagarnir gerast dauflegir er óbrigðult ráð að drífa sig út í mannlífið, helst með myndavél, og undantekningarlaust mun eitthvað óvenjulegt eða skemmtilegt verða á vegi þínum.
Þú gætir til dæmis rekist á einhvern sem er að þvo sér um hárið úti á götu í náttfötunum:
Eða gengið fram á einhvern sem sefur í vinnutímanum:
Kannski sæir þú herramann ganga um götur haldandi á handtösku dömunnar:
Og það er ekki ólíklegt að þú sæir barn pissa á götuna með dyggri aðstoð fullorðinna:
Myndirnar eru allar úr einkasafni bloggsins.








Gaman að kíkja í ykkar heim, svo ólíkt
Takk Ragna, frábært að þú sért að fylgjast með. Já þetta eru ólíkir heimar!
Mér sýnist ég kannast við senu frá Yiwu, konan með barnið. Ég sakna þessa götulífs frá borginni, alltaf eitthvað nýtt að sjá.